Gleðilega hátíð, kæru viðskiptavinir!
Straumlind óskar öllum viðskiptavinum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi ári!
Við þökkum kærlega fyrir ánægjuleg samskipti á árinu í stórum sem smáum málum.
Ódýrara rafmagn á nóttunni hefur gengið frábærlega á svæði HS Veitna og við höldum áfram að berjast fyrir því að allir snjallmælar, á öllum svæðum verði tímamældir þannig að saman getum við nýtt snjallar lausnir.
Straumlind er með ýmsar nýjungar í undirbúningi og við hlökkum mikið til að kynna þær fyrir á nýju ári.
Að lokum minnum við á jólagjafaleik Straumlindar fyrir alla núverandi og nýja viðskiptavini sem finna má á Facebook síðu Straumlindar.
Takk fyrir okkur!
13. desember 2024